
Rafhlaðan hlaðin
Viðvörun:
Aðeins skal nota hleðslutæki sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessari
tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og
slíkri notkun getur fylgt hætta. Notkun ósamþykktra hleðslutækja getur valdið
eldhættu, sprengingu eða haft aðra áhættu í för með sér.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2 Settu höfuðtólið í burðarklemmuna.
3 Tengdu snúru hleðslutækisins við tengið í klemmunni. Rauða stöðuljósið verður
grænt þegar rafhlaðan er fullhlaðin.
4 Hleðslutækið er fyrst tekið úr sambandi við burðarklemmuna, síðan úr
innstungunni.
4

Þegar hleðslutæki er tekið úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að 5 klst. í tali og allt að 100 klst. í biðstöðu. Ef höfuðtólið
er haft í burðarklemmunni endist fullhlaðin rafhlaða í allt að 3 mánuðir í bið.
Þegar rafhlaðan er að tæmast blikkar rauða stöðuljósið og gefur frá sér raddáminningu
á 5 mínútna fresti. Ef slökkt er á raddáminningum gefur höfuðtólið frá sér tón á 5
mínútna fresti.
Hleðsla rafhlöðunnar könnuð
Gættu þess að kveikt sé á höfuðtólinu og snertu og haltu inni í 2 sekúndur.
Raddáminning segir þér hver hleðsla rafhlöðunnar er.