
Kveikt og slökkt á höfuðtólinu
Kveikt
Taktu höfuðtólið úr burðarklemmunni. Höfuðtólið gefur frá sér tón og grænt stöðuljós
blikkar einu sinni.
Höfuðtólið tengist tækinu sem það var síðast tengt við. Ef höfuðtólið hefur aldrei verið
parað við tæki eða pörunum tækisins hefur verið eytt er pörunarstillingin virk.
Slökkt
Settu höfuðtólið í burðarklemmuna. Höfuðtólið gefur frá sér tón og rautt stöðuljós
blikkar einu sinni. Öllum símtölum er slitið.
Ef höfuðtólið er ekki tengt við tæki innan 30 mínútna slekkur það á sér.
Ábending: Ertu ekki með burðarklemmuna með þér? Til að slökkva á höfuðtólinu
heldurðu inni í 4 sekúndur. Kveikt er á höfuðtólinu með því að ýta á .